Átak – félag fólks með þroskahömlun
er með heiðurs-verðlaun sem heita Frikkinn.
Þau sem vinna þessi verðlaun
verða heiðurs-félagar Átaks.
Heiðursverðlaunin Frikkinn eru handa fólki
sem hefur barist fyrir sjálfstæði
fólks með þroska-hömlun
og stuðlað að samfélagi án aðgreiningar.
Nú er Átak að veita heiðurs-verðlaun fyrir árið 2024.
Þú getur tilnefnt fólk
til 19. nóvember.
Eftir 19. nóvember getur þú
ekki tilnefnt lengur.