Form cover
Page 1 of 3


Vinnumarkaðurinn og gervigreind: Hvað gerist næst?

Verið velkomin á morgunverðarfund Almannaróms og Menningar-nýsköpunar-og háskólaráðuneytisins föstudaginn 25. september nk. frá 9:00-10:30 á Parketinu í Grósku (jarðhæð).
Á viðburðinum kemur fram Erik Brynjólfsson, prófessor við Stanford Institute for Human Centered AI og framkvæmdastjóri Stanford Digital Economy Lab. Erik er heimsþekktur hagfræðingur og hefur verið leiðandi í rannsóknum á áhrifum gervigreindar á vinnumarkað.
Að loknu erindi Eriks munu þau Erik og Lilja Dögg, framkvæmdastjóri Almannaróms setjast niður og ræða stöðu vinnumarkaðarins, áhrif gervigreindar og hvers konar samfélagslegra breytinga megi vænta á komandi árum.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Húsið opnar 8:30.

Vinsamlegast skráið mætingu hér að neðan.
Athugið að viðburðurinn fer fram á ensku.
https://storage.tally.so/2be4947c-5142-4252-8283-d81c48220c27/Bakgrunnur-Framtid-starfa-2.png