Mánudaginn 23. nóvember kl. 12–13 í Norræna húsinu.
Hvaða hætta stafar almenningi af fjölþáttaógnum, og gæti heimilið þitt bjargað sér í þrjá daga? Runólfur Þórhallsson, yfirlögregluþjónn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, flytur aðalerindið „Viðbúnaður heimilanna í almannavarnaástandi“ og dómsmálaráðherra flytur ávarp. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Honum verður einnig streymt beint á YouTube-rás Varðbergs.
Ljósmyndari Varðbergs tekur myndir á fundinum og honum er streymt. Myndir og upptaka verða birt á vef Varðbergs og samfélagsmiðlum. Upplýsingar úr skráningunni eru eingöngu notaðar vegna fundarins og, ef þú skráir þig í Varðberg, vegna félagsaðildar. Fyrirspurnir: vardberg@vardberg.is