Við í Framsókn í Reykjanesbæ vinnum að málefnaskrá okkar fyrir komandi kosningar. Við höfum náð góðum árangri á undanförnum árum en það er alltaf hægt að gera betur og við viljum heyra frá ykkur, bæjarbúum.
Við erum hér til að gera bæinn okkar betri fyrir okkur öll og þess vegna viljum við fá að vita hvaða málefni það eru sem þið viljið setja á dagskrá? Er eitthvað alveg augljóst sem þarf að laga og við erum ekki að sjá?
Ef þú vilt frekar deila með okkur í persónu er þér hjartanlega velkomið að kíkja á okkur í Framsóknarhúsið, Hafnargötu 62, þriðjudaginn 24. mars, kl. 19:30 til 21:30. Við lofum heitu á könnunni og líflegum umræðum!
Hér fyrir neðan eru spurningar sem við biðjum þig að svara eftir bestu getu. Það tekur um 3-7 mínútur að svara könnuninni, þú þarft ekki að svara öllum spurningunum eða allri könnuninni. Við getum ekki séð hver svarar könnuninni.
Raðaðu málaflokknum sem þér finnst mikilvægastur efst og svo koll af kolli
Hvaða málaflokkur ætti að vera í forgangi hjá bæjarstjórn Reykjanesbæjar næstu fjögur árin?
Use the up and down arrow keys to change the rank.