Máltæknifyrirtækið Bara Tala, Gefum íslensku séns, ásamt Brimi efna til viðburðar þar sem staða íslenskunnar meðal annarsmálshafa á Íslandi verður rædd.
Hvernig sköpum við umhverfi þar sem fólk fær raunveruleg tækifæri til að læra og nota íslensku og tryggjum þannig að íslenska verði áfram nothæft samskiptamál á Íslandi?
Hvaða ábyrgð bera atvinnurekendur, stjórnvöld og við sjálf sem íslenskumælandi samfélag?
Og hvernig getum við betur stutt við þá sem eru að læra tungumálið?
Við fáum til okkar öflugan hóp gesta sem nálgast málefnið frá ólíkum sjónarhornum og tökum saman opið samtal um stöðu íslenskunnar og ræðum hvert við viljum stefna.
Húsið opnar klukkan 16:30 og dagskrá hefst 16:45. Við hvetjum ykkur til þess að mæta tímanlega.
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, og Pálmi Hafþór Ingólfsson, fræðslustjóri Brims, ræða stöðu og framtíð íslenskunnar.
Valerio Gargiulo, rithöfundur og þýðandi, flytur stutt erindi sem byggir á grein hans: „Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku?“
Helga Fjóla Sæmundsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Hornsteins, flytur stutt erindi um íslenskukennslu á karllægum vinnustað.
Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra
Peter Weiss, stjórnarformaður Gefum íslensku séns.
Að lokinni dagskrá mun plötusnúðurinn Doctor Victor þeyta skífum.
Við hlökkum til að sjá ykkur!