Faxatorg heldur reglulega Pop-up viðburði til að auka sýnileika staðarins ásamt því að gefa netverslunum og smærri fyrirtækjum tækifæri til að vera með aðstöðu til að kynna fyrirtækið sitt, vöruúrval og þjónustu. Þó eru haldin örfá rými fyrir stærri fyrirtæki.
Allir viðburðirnir hafa verið framar væntingum skipuleggjanda og aðsókn í húsið meiri í hvert skipti.
Hér getur þú sótt um að fá að taka þátt á næstu Pop-up hátíð Faxatorgs sem verður haldin laugardaginn 3. Október kl.13-16. Athugið þau fyrirtæki sem valin verða þurfa að greiða 5.000kr þátttökugjald til að tryggja sér pláss. Sú upphæð er til að takmarka forföll og til að halda uppi viðburðinum. Ekki munu öll fyrirtæki komsat að sem óska þess og verður séð til þess að það verði fjölbreytni í fyrirtækjavali til að takmarka samkeppni og auka fjölbreytileika.